Blaðamannaverðlaun: Tilnefningafrestur til 4. febrúar

Birgir Guðmundsson • 22. janúar 2022

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 19. skipti föstudaginn 1. apríl næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en s kilafrestur tilnefninga til dómnefndar er föstudagurinn 4. febrúar næstkomandi .

Eins og undanfarin ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:

  •  Besta umfjöllun ársins 2021
  •  Viðtal ársins 2021
  •  Rannsóknarblaðamennska ársins 2021
  •  Blaðamannaverðlaun ársins 2021

Hægt er að senda inn tilnefningar til verðlaunanna á skrifstofu Blaðamannafélagsins í Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma ásamt gögnum með röksemdafærslu fyrir tilnefningunni. Jafnframt er hægt að tilnefna með rafrænum hætti á heimasíðu BÍ, www.press.is 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.