Blaðamannaverðlaunin: Tilnefningarfrestur til 3. febrúar

Auðunn Arnórsson • 23. janúar 2023

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands verða veitt í 20. skipti þann 10. mars næstkomandi. Tilnefningar dómnefndar verða kynntar viku fyrir afhendingu en skilafrestur tilnefninga til dómnefndar er föstudagurinn 3. febrúar næstkomandi. 

Eins og undanfarin ár verða verðlaunin veitt í fjórum flokkum en þeir eru þessir:

  •  Besta umfjöllun ársins 2022
  •  Viðtal ársins 2022
  •  Rannsóknarblaðamennska ársins 2022
  •  Blaðamannaverðlaun ársins 2022

Þau sem vilja senda dómnefndinni efni sem birt var á síðastliðnu ári sem þeim þykir eiga erindi í að keppa um að hljóta viðurkenningu skulu gera það rafrænt: Hér á Press.is er þar til gert innsendingarhólf, en einnig má koma tilnefningum til skila á netfangið Bladamannaverdlaun@press.is eða beint á skrifstofu félagsins að Síðumúla 23 á auglýstum skrifstofutíma og beina til Auðuns Arnórssonar verkefnastjóra. Tilheyrandi gögn og röksemdafærsla skulu fylgja hverri tilnefningu. 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.