Blaðamenn funda með ríkislögreglustjóra

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 7. nóvember 2022

Blaðamannafélag Íslands heldur fund með ríkislögreglustjóra fimmtudaginn 10. nóvember kl. 10. Viðfangsefni fundarins er samskipti lögreglu og blaðamanna. Tilefnið er nýlegar aðgerðir til að hindra blaðamenn við störf.

Líkt og fram hefur komið gripu starfsmenn Isavia til aðgerða til að koma í veg fyrir að blaðamenn gætu myndað brottflutning hælisleitenda á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku. Blaðamannafélagið hefur sent ríkislögreglustjóra og forstjóra Isavia bréf þar sem óskað er upplýsinga um hver beri ábyrgð á þeirri ákvörðun að starfsmenn beittu ljósabúnaði til að koma í veg fyrir að hægt væri að mynda atburðinn. Farið var fram á frekari upplýsingar um atburðinn og óskað var eftir svörum við tilteknum spurningum. Ekki hafa fengist svör við þeim en í framhaldi af bréfinu frá BÍ þáði Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri boð Blaðamannafélagsins um að koma á fund með félagsmönnum til að ræða samskipti lögreglu og blaðamanna. Bent hefur verið á að þetta atvik sé ekki einsdæmi um aðgerðir sem tengjast störfum lögreglu þar sem blaðamenn verða fyrir hindrunum við störf.

Á fundinum verða til svara frá ríkislögreglustjóra:
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri
Helgi Valberg Jensson yfirlögfræðingur
Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri

Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður BÍ stýrir fundinum.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.