Blaðamenn fái sérstaka vernd í lögum

admin • 17. júlí 2013

Norska Blaðamannafélagið hefur sent bréf til dómsmálaráðherra og réttarfarsnefndar þar sem óskað er eftir því að blaðamenn og ritstjórnir njóti sérstakrar verndar gagnvart ofbeldi og hótunum. Í bréfinu segir að ástæða sé til að hafa áhyggjur af vaxandi tilhneigingu til valdbeitingar og hótana gagnvart ritstjórnum í því skyni að koma í veg fyrir umfjöllun um tiltekin mál. Bendir Blaðamannafélagið á að slíkar hótanir gagnvart tjáningarfrelsinu beri að taka mjög alvarlega.

Fram kemur hjá Blaðamannafélaginu að ástæða sé til að víkka út ákvæði í hengingarlögum sem veiti einstökum starfsstéttum sérstaka vernd gagnvart ofbeldi og hótunum, þannig að það nái til ritstjórna og blaðamanna. Slík ráðstöfun myndi að sögn félagsins vera í samræmi við það sem bæði Hæstiréttur og ríkisögmaður hafa áður sagt að ritstjórnir þyrftu á að halda.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.