Blaðamenn og útgefendur eiga samleið í baráttu fyrir frelsi fjölmiðla

admin • 21. júlí 2016

Mogens Blicher Bjerregård, formaður Evrópusambands blaðamanna (EFJ) segir í leiðara nýjasta fréttabréfs sambandsins, EFJ Focus,  að ýmsar ógnir steðji að frjálsi fjölmiðlun í álfunni og blaðamenn og útgefendur hafi sameiginlega hagsmuni af því að berjast gegn slíkum ógnum. Báðir aðilar vilji tryggja fjölbreytni og fjölræði  á fjölmiðlamarkaði og að þessu leyti sé brýnt að ná samstöðu um slík mál.  Hann segist munu beita sér fyrir samtali sem hafi þetta að markmiði, en bendir líka á að vissulega fari hagsmunir ekki alltaf saman og nefnir í því sambandi kjaramál og höfundaréttamál, þar sem blaðamenn þurfi að standa fastir fyrir.

Leiðara Bjerregård  og fréttabréfið í heild  má sjá hér .

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.