BNA: Stéttafélög sækja á

admin • 9. október 2015

 Bylgja stéttafélagsvæðingar virðist nú fara um ritstjórnir í Bandaríkjunum, einkum og sér í lagi meðal blaðamanna sem vinna mikið í gegnum netið.  Fyrr í vikunni ákvað hópur blaðamanna  eftir kosningar á Al Jazzeera America að gagna til liðs við stéttafélagið NewsGuild í New York sem er aðildarfélag Alþjóða blaðamannasambandsins (IFJ). Áður hafði yfirstjórn fyrirtækisins neitað að viðurkenna umboð félagsins.  Þá hafa hópar ritstjórnarmeðlima á Gwaker, Slaon, ThinkProgress og Vice Media gengið í Writers Guild of America. Auk þessa höfðu blaðamenn á Guardian US hafði gengið til liðs við NewsGuild og á Huffingto Post munu umræður í gangi um að stéttafélagsvæða ritstjórnina.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.