Bretland: Kynferðisleg áreitni í sjónvarpi
Birgir Guðmundsson • 8. desember 2017
Kynferðisleg áreitni og einelti virðist mjög algengt í meðal fjölmiðlafólks í sjónvarpi samkvæmt nýrri sameiginlegri könnun EITF og Channel 5 News í Bretlandi og Guardian greinir frá. Könnunin náði til 315 manns í sjónvarpsgeiranum og í ljós kom að 2/3 þeirra höfðu orðið fyrir áreitni á vinnustað, þótt meirihluti þeirra hafi ekki tilkynnt um það af ótta við neikvæðar afleiðingar fyrir starfsframa þeirra. Meðal niðurstaðna úr könnunin var eftirfarandi:
- Mikill meirihluti (84%) þeirra sem urðu fyrir áreitni tilkynnti ekki um málið.
- Innan við helmingur (47%) þekktu hvaða rétt þeir höfðu í málum sem tengjast einelti eða kynferðislegri áreitni.
- Meirihluti þeirra sem urðu fyrir áreitni sögðu að það hefði gerst á síðustu fimm árum.
Sjá frétt Guardian hér



