Brýnt erindi eða ljótur jakki?

admin • 30. október 2012

“ Konur í stjórnmálum – brýnt erindi eða ljótur jakki?” er yfirskrift erindis sem Guðbjörg Hildur Kolbeins mun flytja á fundi hjá Femínistafélagi Íslands nú á fimmtudaginn,1. nóvember. Erindið fjallar um umfjöllun fjölmiðla um konur í kosningabaráttu og hlutfall kynjanna í kosningaumfjöllun fjölmiðla. Hin óvenjulega yfirskrift er sótt í umræðu sem orðið hefur um grænan jakka sem Angela Merkel klæddist í sumar og vakti mikla athygli.

Fundurinn verður haldinn á veitingastaðnum Horninu í Hafnarstræti 5 og hefst kl. 20:00

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.