Búist við svartri skýrslu um breska fjölmiðla

admin • 31. ágúst 2012

Búist er við mjög svartri skýrslu frá Brian Levenson, lávarði, en honum var falið að stýra rannsókn á breskum fjölmiðlum, gæðum þeirra og siðferðilegum viðmiðum. Rannsóknin var sett af stað í kjölfar hneykslismála sem tengdust News Corp fyrirtæki Rupert Murdochs. Ljóst þykir að víða verður komið við í skýrslunni og m.a. tekið á málum snerta rétt fólks til einkalífs og vernd þess réttar og svo sjálfsaga fjölmiðlafólks og þess að blaðamenn setji sér sjálfir reglur og viðmið (self-regulation).

Dagblaðið Guardian greinir frá útdrætti úr skýrslunni upp á fimm síður sem stjórnendur fjölmiðlafyrirtækja hafa fengið að sjá. Samkvæmt Guardian þá segja menn sem fengið hafa að sjá þennan útdrátt að gagnrýnin sé gríðarleg á breska fjölmiðla svo jaðri við fordæmingu. Hefur blaðið eftir viðmælanda að skýrslan sé „afhjúpandi“. Fréttir um skýrsluna fóru að leka út eftir að ýmsir sem í henni eru fóru að fá bréf þar sem þeim var boðið að nýta sér andmælarétt sinn. Búist er við að skýrslan komi út í sinni endanlegu mynd í október.
Sjá einnig hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.