Dagur fjölmiðlafrelsis - dagur fjölbreytileikans

admin • 13. apríl 2016

Dagur fjölmiðlafrelsis verður tilefni aðgerða víðs vegar um heim þann 3. maí næst komandi, en það eru Sameinuðu þjóðrnar sem tileinkuðu fjölmiðlum og prentfrelsinu þennan dag.  Víða er pottur brotinn í þessum efnum og í Evrópu hyggst EFJ, Evrópusamband blaðamanna efna til mikils málþings í Brussel, sem á að gefa tóninn fyrir umræðu um blaðamennsku og er dagurinn kallaður „hinsegin- dagur“ eða „dagur breytileikans“ (difference-day).  Tilefni þykir til nú að draga athygli að fjölbreytni í samfélaginu og gagnkvæmri virðingu fyrir ólíkum lífsstíl og menningu og veita þeim athygli sem á einhvern hátt eru afskiptir í samfélaginu, einangraðir eða beinlínis kúgaðir. Í þessum skilningi er í raun verið að hvetja til þes að frelsi fjölmiðla (og skyldur) taki mið af aðstæðum á hverjum stað er sé ekki skilgreint sem eitthvað tiltekið  form eða fasti.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.