Dagur fjölmiðlafrelsis: Öryggi blaðamanna sett á oddinn

Birgir Guðmundsson • 3. maí 2021

Í dag, 3 maí, sem er dagur fjölmiðlafrelsis, ýtti Evrópusamband blaðamanna úr vör viðamikilli könnun um öryygi og vinnuaðsstæður blaðamanna í álfunni. Könnunin er hluti af víðtækara verkefni sem EFJ stendur fyrir og miðar að því að kortleggja og betrumbæta starfsumhverfi blaðamanna.

Ricardo Gutiérrez, framkvæmdastjóri EFJ segir að á umliðnum árum hafi öryggi blaðlamanna orðið sífellt mikilvægara mál, enda hafi árásir af öllu tagi á blaðamenn aldrei verið algengari – árásir sem jafnvel hafa verið banvænar. 

„Öryggi og velferð blaðamanna hefur um um langt skeið setið á hakanum og áherslan verið á hraða og sólarhringsvaktir í fréttaumfjöllun. Það er kominn tími til að horfa til þeirrar skyldu að hlúa að heilsu blaðamanna, jafnt aldlegri sem líkamlegri,“ segir Gutiérrez.

Með könnuninni meðal blaðamanna er hugmyndin að skoða hvernig blaðamenn skynja ógnanir við líkamlega og andlega heilsu sína og hvað vinnuveitendur séu að gera í málunum. Könnunina er hægt að taka með því að fara inn á  heimasíðu EFJ hér.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.