Danir taka sýrlenska blaðamenn inn í Blaðamannafélagið

admin • 2. október 2013

Blaðamannafélag Danmerkur (DJ) hefur tekið 30 sýrlenska blaðamenn inn sem meðlimi í Blaðamannafélaginu. „Þessir blaðamenn eru allir teknir inn sem sérstakur hópur sem við viljum lýsa stuðningi við. Þeir munu ekki þurfa að borga félagsgjöld til DJ, en þeir munu heldur ekki fá fréttabréf eða ráðgjöf frá félaginu,“ segir Eva Jakobsen. Hún bendir á að þessi stuðningur muni ekki koma niður á þjónustu við starfandi blaðamenn í Danmörku, en hins vegar veiti þetta sýrlensku blaðamönnunum mikið hagræði þar sem þá geta þeir fengið alþjóðleg blaðamannaskýrteini sem auðveldi þeim alla vinnu. Blaðamennirnir frá Sýrlandi starfa allir við útlæga útvarpsstöð sem er óháð deiluaðilum í landinu og senda þeir út frá París í gegnum gervihnött og netið.
Sjá einnig hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.