Dönskum blaðamanni misþyrmt í Tyrklandi

admin • 4. desember 2015

Evrópusamband blaðamanna og Blaðamannafélagið í Danmörku hafa fordæmt árás tyrkneskra landamæravarða á danskan blaðamann, Nagieb Khaja, í gær þegar Khaja var að fara yfir landamærin til Sýrlands til að dekka flóttamannamál.  Blaðamannafélags Danmerkur er þegar búið að skrifa tyrkneska sendiherranum  í Danmörku og krefjast þess að rannsókn fari fram á málinu og sama krafa hefur komið frá EFJ. Yfirvöld Í Tyrklandi tilkynntu í dag að rannsókn málsins væri hafin.

Kahja var á leiðinni yfir landamærin þegar tyrkneskir öryggisverður stöðvuðu hann og þrátt fyrir að hann hafi gert grein fyrir sér sem blaðamanni þá var hann barinn í jörðina og sparkað  í hann. 

Sjá meira hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.