Drög að frumvarpi birt á næstu dögum

Birgir Guðmundsson • 18. janúar 2019

Kjarninn greinir frá því í morgun í ítarlegri fréttaskýringu um stöðu á fjölmiðlamarkaði að á næstu dögum sé von á frumvarpi sem bæta á rekstrargrundvöll einkarekinna fjölmiðla  inn í samráðsgátt stjórnvalda.   Samkvæmt heimildum Kjarnans sýna útreikningar á þeim tveim helstu leiðum sem rætt hefur verið um, það að endurgreiða hluta kostnaðar við gerð ritstjórnarefnis  annars vegar og að veita styrki til fjölmiðla hins vegar, að áhrifin séu svipuð og dregur Kjarninn þá ályktun að endurgreiðsluleiðin muni verða ofan á.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.