EFJ: Blaðamannafélög í lykilhlutverki

Stefna ehf • 27. október 2016

Evrópusamband blaðamanna (EFJ) hefur nú gefið út handbók um störf og réttindi í blaðamennsku og er þessi útgáfa liður í átaki sem staðið hefur yfir á vegum sambandsins um nokkurt skeið. Í handbókinni er tekin dæmi af nokkrum aðferðum sem þykja til fyrirmyndar við að tryggja réttindi blaðamanna og störf í blaðamennsku.  Tilefni þessa átaks og útgáfu eru þær gríðarlegu breytingar sem orðið hafa í starfsumhverfi blaðamanna í álfunni, bæði vegna tæknibreytinga og nýrra tegunda miðlunar, m.a. með fjölbreyttum gáttum og mikilli útbreiðslu samfélagsmiðla ásamt harðnandi rekstrarumhverfis.

Í inngangi handbókarinnar segir meðal annars:  „ En eitt helst óbreytt – réttidi blaðamanna og störf í blaðamennsku haldast í hendur. Ef blaðamenn njóta ekki sanngjarnra kjara og nauðsynlegra rétinda, þá verður ekki hægt að tryggja gæði í blaðamensku. Blaðamannafélög eru mikilvæg til að verja réttindi blaðamanna og gera þeim kleift að mæta þeim áskorunum sem breytingar á starfsumhverfi hafa skapað....  Þessi handbók er hluti af tveggja ára verkefni EFJ sem kallast „Rétindi og störf í blaðamennsku – sterkari  blaðamannafélög“  og er hugsað sem verkfæri til að takast á við  breytt umhverfi.“

Þess má geta að forysta Blaðamannafélags  vinnur nú að útgáfu á nýrri og uppfærðri Réttheimtu, sem er einmitt eins konar handbók fyrir félaga í BÍ þar  sem tekin hafa verið saman allar reglur og samningar sem snerta kjör og réttindi blaðamanna. Réttheimtan er hugsuð sem handhægt verkfæri sem kallast á við upplýsingar á heimasíðu BÍ og upplýsingar sem veittar eru á skrifstofu félagsins.  Hún mun einnig verða á rafrænu formi á heimasíðunni.  Stefnt er að útkomu Réttheimtunnar í nóvember.

Sjá meira hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.