EFJ: Fordæmir ákæru fyrir að birta Lúxemorgar-lekagögn

admin • 28. apríl 2015

Evrópusamband blaðamanna (EFJ) hefur fordæmt ákvörðun stjórnvalda í Lúxemborg að ákæra franska blaðamanninn Édouard Perrin fyrir að birta trúnaðarupplýsingar frá endurskoðunarfyrirtækinu PricewaterhouseCooper (PwC) um skattasamninga sem fjölþjóðafyrirtæki gerðu þar í landi, upplýsingar sem þekktar eru undir nafninu „Luxleaks“.   Málið er mjög sérstakt og minnir á umkvartanir   og umræðu hér á landi árið 2009 þegar Fjármálaeftirlitið sendi saksóknara mál fimm blaðamanna á þeirri forsendu að þeim væri óheimilt að birta upplýsingar úr lánabók Kaupþings sem lekið hafði til þeirra.   Samkvæmt ákærunni á hendur Perrin er honum gefið að sök að hafa verið meðhöfundur ef ekki vitorðsmaður í leka frá fyrrum starfsmönnum PwC.    Ricardo Gutierrez framkvæmdastjóri EFJ segir það skammarlegt að stjórnvöld í Luxemborg skulu elta uppi blaðamann fyrir að gera skyldu sína sem sé að birta upplýsingar sem þjóni almannahagsmunum.

Sjá einnig hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.