EFJ: Fordæmir barsmíðar á fréttamanni í viðtali

Birgir Guðmundsson • 16. nóvember 2017

Í gær, 15 nóvember, hitti innanríkisráðherra Ítalíu fulltrúa blaðamannasamtakanna FNSI, til að ræða tjáningarfrelsi og stöðu og öryggi blaðamanna í landinu. Daniele Piervincenzi, sem er sjónvarpsfréttamaður við ríkissjónvarpsstöðina RAI var beinlínis barinn af viðmælenda sínum, Roberto Spada, en hann er bróðir háttsetts mafíuforingja og hefur áður orðið uppvís að ofbeldi – þó það hafi ekki verið gegn blaðamönnum og í upptöku.  Viðtalsefnið snerist um staðbundnar kosningar í Ostia og átti þessi atburður sér stað  þann 7. nóvember sl. Fréttamaðurinn var að spyrja um tengsl Roberto Spada við hægri-öfgasamtök og uppskar nefbrot og barsmíðar. Myndatökumaðurinn, Edoardo Anselmi, tók atburðinn upp en fékk líka að kenna á hökkum frá Roberto Spada.

Evrópusamband blaðamanna hefur fordæmt atvikið og kvartað til Verkefnisstjórnar Evrópuráðsins um vernd blaðamanna vegna þess.

Sjá upptöku af barsmíðunum hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.