EFJ: Orðanotkun skiptir máli

admin • 1. september 2015

Evrópusamband blaðamanna (EFJ) hefur sent frá sér áminningu til félagsmanna sinna og fjölmiðla almennt þar sem minnt er á ákvæði siðareglna Alþjóðasambands blaðamanna um hættuna á að umfjöllun geti stuðlað að mismunun. Í siðareglunum segir m.a. að blaðamenn “skuli vera meðvitaðir um hættuna á því að mismunun gagnvart tilteknum hópum  aukist fyrir tilverknað fjölmiðla og að fjölmiðlafók eigi að gera alt sem í þess valdi stendur til að forðast mismunun á grundvelli kynþáttar, kynferðis, kynhneigðar, tungumáls, trúar, stjórnmála- eða annarra skoðana og uppruna” ( IFJ Declaration of Principles on the Conduct of Journalists).

Tilefni þessarar áminningar er umfjöllun evrópskra fjölmiðla um fljóttamannamál og mikinn fjölda flóttamanna sem  leitar skjóls í Evrópu. EFJ segir að nú sé sérstaklega mikilægt að fjölmiðlar gæti orða sinna og noti hugtök og orð sem séu í samræma við ástandið en ýki það ekki eða skapi óþarfa ótta hjá fólki, enda geti verið stutt í útlendingahatur og hatursorðræðu.

Ricardo Gutiérrez, framkvæmdastjóri EFJ, segir brýnt að ritstjórar og blaðamenn ræði um orðanotkun og velti henni fyrir sér vegna þess að orð skipti miklu máli. Hann vitnar í heimspekinginn, skáldið og útlærðan blaðamanninn Albert Camus sem sagði að það "að nefna hluti röngum nöfnum bætti á böl heimsins”.   

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.