EFJ: Pólitísk viðbrögð verði í anda samstöðugöngu

admin • 13. janúar 2015

Í tilefni af samstöðugöngunni sem farin var í París á sundaginn þar  sem  ýmsir þjóaleiðtogar gengu ásamt milljónum annarra  í nafni tjáningarfrelsis og í minningu fórnarlamba hryðjuverka  vikunnar hefur Evrópusamband blaðamanna gefið út að brýnt sé að pólitísk viðbrögð göngunnar séu í anda hennar.  Bent er á að mikilvægt sé að leiðtogar mættu í gönguna  þótt þeir kæmu frá ríkjum, sem alla jafna eru talin fjandsamleg tjáningarfrelsi, s.s. Tyrklandi, Rússlandi, Ungverkjalandi, Ísrael og Spáni  þurfi nú að fylgja þátttöku sinni eftir með pólitískum aðgerðum.

EFJ varar hins vegar stjórnmálamenn í  Evrópu við því að falla í þá freistni að nota þessi voðaverk til að setja strangari þjóðaöryggislöggjöf þar sem gengið sé á rétt  einstaklinganna. Reynsla undanfarinna ára  hafi sýnt að veruleg hætta sé á að  fjölmiðlafrelsi verði fyrsta fórnarlambið í slíku „stríði gegn hryðjuverkum“ eða aðgerðum í nafni almenns öryggis. „Einu pólitísku viðbrögðin sem hæfa samstöðunni sem fram kom í samstöðugöngunni á sunnudag, eru að festa enn frekar í sessi frelsi og lýðræði. EFJ fyrir hönd 300 þúsund meðlima sinna vill gera sitt til að tryggja að svo muni verða,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.
Sjá einni hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.