EFJ spyr hvað ESB ætli að gera í aðför að fjölmiðlafresli?

admin • 27. ágúst 2013

Evrópusamband blaðamanna (EFJ) hefur sent Framkvæmdastjórn ESB bréf þar sem alvarlegum áhyggjum er lýst vegna husanlegra áhrifa misnotkunar á hryðjuverkalögum á frelsi fjölmiðla í Evrópu. Jafnframt lýsir EFJ því yfir að það sé tilbúið til að leggja fram formlega kvörtun vegna framkomu breskra stjórnvalda og brota þeirra á sáttmálum Evrópusambandsins. Tilefni bréfsins er að sjálfsögðu handtaka og yfirheyrslurnar yfir David Miranda, maka Glenn Greenwald blaðamanns Guardian, sem mikið hefeur skrifað upp úr gögnum um njósnir NSA í Bandaríkjunum.

Það er forseti EFJ, Daninn Mogens Blicher Bjerregård, sem sendir bréfið til Viviane Reding framkvæmdastjóra fyrir dómsmál, mannréttindi og borgararétt í ESB, og spurði einfaldlega að því hvað Framkvæmdastjórnin ætlaði að gera í því að aðildarríki, einkum Bretland, brytu gróflega gegn fjölmiðlafrelsi?

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.