EFJ: Vilja rannsókn á kringumstæðum hryllilegs dauða blaðakonu

Birgir Guðmundsson • 5. október 2020

Irina Slavina, ritstjóri fréttavefsíðu í Rússlandi, lést síðastliðin föstudag af völdum brunasára eftir að hún kveikti í sér fyrir utan skrifstofur innanríkisráðuneytisins  í Nizhniy Novgorod í Rússlandi. Áður en hún kveikti í sér hafði hún skrifað á facebook síðu sína. „Ég bið ykkur um að saka rússnesk stjórnvöld um dauða minn.“  Evrópusamband blaðamanna og ýmis rússnesk samtök blaðamanna hafa krafist þess að kringumstæður þessa hryllilega dauða blaðakonunnar verði rannsakaðar.  Þann 1. október skrifaði Irina Slavina frétt á vefsíðuna að lögreglumenn hafi ráðist inn í íbúð hennar í leit að efni sem tengdist baráttuhópi fyrir lýðræðisumbótum og heitir Open Russia. Irina Slavina var 47 ára, gift, og átti eina dóttur.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.