Frakkland: Víðtæk mótmæli en eftirlitslög samþykkt

admin • 9. júní 2015

Franska þingið samþykkti í dag umdeilt frumvarp sem eykur heimildir til eftirlits og persónunjósna og er yfirlýstur tilgangur þess að auka varnir gegn árásum íslamskra öfgahópa.  Frumvarpið sem nú er orðið að lögum var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða í þinginu, 438 gegn 86, heimilar m.a. miklu víðtækari söfnun upplýsinga um fólk en áður og það kemur í beinu framhaldi af röð hryðjuverka í París í janúar síðast liðnum þegar 17 manns létu lífið.

Bæði Alþjóðasamband blaðamanna og Evrópusamband blaðamanna höfðu í gær sent  François Hollande forseta Frakklands bréf þar sem frumvarpinu var mótmælt og bent á að það myndir hafa stórfelldar afleiðingar fyrir frelsi fjölmiðla og möguleika blaðamanna til að vernda heimildarmenn sína. Almenn´og víðtæk mótmæli hafa að undanförnu verið í Frakklandi gegn frumvarpinu.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.