EFJ: Samúðar- og aðhaldsherferð vegna Daphne Caruana Galizia

Birgir Guðmundsson • 17. október 2017

Daphne Caruana Galizia, 53ja ára rannsóknarblaðamður á Möltu var í gær drepin með bílsprengju nálægt heimili sínu í bænum Bidnija.  Evrópusamband blaðamanna og Alþjóðasamband blaðamanna hafa fordæmt þennan verknað. Daphne Caruana Galizia var þekkt fyrir afhjúpandi blaðamennsku sína, nú síðast í tengslum við panamaskjölinm en blogg hennar Running Commentary var einhver mest lesna vefsíða á Möltu.

Til að sýna fjölskyldu Daphne Caruana Galizia samúð og yfirvöldum á Möltu aðhald við rannsókn málsins hefur Evrópusamband blaðamanna hvatt blaðamenn vítt um álfur og forustumenn blaðamanna til að taka af sér mynd með miða  sem á stendur " Justice for Daphne" #DaphneCaruana og deila á samfélagsmiðlum. Hjálmar Jónsson hefur þegar riðið á vaðið og hvetur félaga BÍ til að gera slíkt hið sama.

 

Daphne Caruana Galizia

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.