Er þetta í lagi? Hvað finnst þér?

admin • 5. desember 2012

Dagblaðið The New York Post framkallaði gríðarleg viðbrögð, mótmæli og hneykslan þegar það birti í gær mynd á forsíðu af manni sem hrint hafði verið niður á spor neðanjarðarlestar. Hann komst ekki upp og  lest kom brunandi að og keyrði á manninn nokkrum sekúndum eftir að myndin var tekin. Hann dó samstundis.Textinn var „Dæmdur: hrint niður á lestarteina, þessi maður er um það bil að deyja“.  Sá sem tók myndina er free-lance ljósmyndari og segir hann og ritstjórn New York Post að hann hafi ekki haft líkamsstyrk til að dragamanninn upp en hann hafi hins vegar reynt að gera lestarstjóranum viðvartmeð því að smella af flassi sínu ítrekað. Þetta þykir mörgum ekki boðleg afsökun og alvarlegar siðferðilegar spurningar vakna um hvort ljósmyndari hafi átt að reyna að aðstoða frekar en taka mynd, hvort réttlætanlegt sé að birta myndina og hvort yfirskriftin sé við hæfi.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.