Eru takmörk á tjáningarfrelsinu?

admin • 2. október 2015

Í dag eru 10 ár liðin frá því að Múhameðsteikningarnar  birtust í  Jótlandspóstinum í Danmörku. Birting teikninganna hefur verið tilefni mikilla umræðna um tjáningarfrelsi og takmörk þess. Í tilefni af því er hér birt um hálftíma  samræða milli tveggja málsmetandi blaðamanna  sem eru leiðandi í umræðunni um tjáningarfrelsið í dag.  Annars vegar er það Aidan White, sem er framkvæmdastjóri Ethical Journalism Network (EJN) og fyrrum framkvæmdastjóri Alþjóðasambands blaðamanna og hins vegar Anette Young sem er blaðamaður og fréttaþulur á frönsku stöðinni France 24 en er upphaflega frá Ástralíu. Samtalið á sér stað í gegnum Skype.   Þessi umræða er liður í umræðutorgi sem EJN stendur fyrir undir yfirskriftinni „Eru einhver takmörk á tjáningarfrelsinu?“

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.