Evrópskur styrkur til rannsóknar á tjáningarfrelsisbrotum

admin • 25. ágúst 2015

Journalismfund.eu og  European Centre for Press and Media Freedom  munu veita blaðamanni(mönnum)  styrki (10.000 evrur) til að vinna með sjálfstæðum hætti umfjöllun um hugsanleg brot á tjáningarfrelsi í Evrópu. Þannig er hugmyndin að blaðamönnum gefist fjárhagslegt svigrúm og tækifæri til að rannsaka og viða að sér nauðsynlegu efni í ítarlega umfjöllun t.d. um einhvers konar takmarkanir á tjáningarfrelsi í því landi sem blaðamenn starfa.  Umsóknarfrestur um styrkinn er til 15. september og á þriðjudaginn mun ritstjóri verkefnisins Brigitte Alfter verða til viðtals á Skype fyrir þá sem hyggjast sækja um og veita þeim ráðgjöf varðandi efnistök í umfjölluninni og hvort tiltekin verkefni séu líkleg til að hljóta styrk eða ekki.

 

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.