Evrópuráðið: Skýrsla um stoðir lýðræðis

Birgir Guðmundsson • 21. ágúst 2018

Í nýrri skýrslu framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, Thorbjörns Jaglands, um „stóðu réttarríkis, lýðræðis og mannréttinda“ í Evrópu (aðildarríkjum Evrópuráðsins) koma m.a. fram mjög ákveðnar tillögur um það að bæta þurfi öryggi blaðamanna og að tryggja þurfi með samvinnu margra aðila ábyrgð í dreifingu frétta og  ritstjórnarlegri ábyrgð.  Í skýrslunni er mikil áhersla lögð á mikilvægi faglegrar blaðamennsku og þar segir m.a. eftirfarandi: “Sú mikla lýðræðisvæðing sem fylgir internetinu mun þó aldrei geta komið í staðinn fyrir góða faglega blaðamennsku.  Það er ólíklegt að spilltir embættismenn muni hræðast tilfallandi umfjöllun á netinu, en þeir munu beita öllum ráðum til að koma í veg fyrir að málum þeirra verði brugðið undir birtu raunverulegrar rannsóknarblaðamennsku.”  (bls. 29)

Í skýrslunni er Ísland nefnt sem dæmi um hvernig dómstólar og lögbönn hafa tafið og hindrað gagnrýna blaðamennsku og er þar vitnað í lögbannsmálið á gögn frá þrotabúi Glitnis gagnvart Stundinni og Reykjavík Media.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.