Facebook bannar myndbönd sem fölsuð eru með hátæknilegum hætti.

Birgir Guðmundsson • 13. janúar 2020

Facebook hefur kynnt nýja stefnu fyrirtækisins þar sem bönnuð verður birting myndbanda sem hefur verið breytt með gervigreind, eða svokölluð „deepfake“ myndböndum. Bannið á að taka á myndböndum sem eru líkleg til að fá fólk til að trúa  því að einhverjir einstaklingar hafi sagt eitthvað sem þeir hafa í raun og veru ekki sagt.  Þetta er liður í undirbúningi Facebook fyrir forsestakosningarnar í Bandaríkjunum síðar á árinu.  Þessi nýja stefna nær hins vegar ekki  að sögn Guardian til myndbanda sem átt hefur verið við eða hafa verið klippt og unnin með hefðbundnum aðferðum og klippiforritum, þrátt fyrir að helstu myndböndin sem stuðla að röngum upplýsingum eða upplýsingamengun hafi í raun og veru búið til með slíkum hætti og gervigreind og hvergi komið við sögu.  Slík myndskeið sem unnin eru með hefðbundnum aðferðum eru því áfram leyfð á miðlinum.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.