Falsfréttir, fjölmiðlar og lýðræði

Birgir Guðmundsson • 11. september 2018

„Falsfréttir, fjölmiðlar og lýðræði”. Er yfirskriftin á opnum fundi sem haldin verður fimmtudaginn 13. september frá 12:00-13:30 í Norræna húsinu. Fundurin er haldinn á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Sendinefndar ESB á Íslandi.  Á fundinum mun Giles Portman ræða um falsfréttaherferð Rússlands, sem herjar á Evrópusambandið, nágrannaríki þess og lýðræðisleg gildi sem slík.  Hvernig er best að bregðast við þessu? Hvaða skref þarf að taka til þess að bæta og auka stuðning við fjölmiðla innan ESB?

Í pallborði á eftir erindi Portmans munu vera þau Elfa Ýr Gylfadóttir, frkv. Fjölmiðlanefndar, Jón Ólafsson prófessor og Smári McCarthy þingmaður, en fundarstjóri verður Valgerður Jóhannsdóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild.

Fundurinn er öllum opinn og fer hann fram á ensku.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.