Félagar þurfa að skrá sig á aðalfund BÍ

Birgir Guðmundsson • 27. apríl 2021

Athygli er vakin á því að vegna sóttvarnarreglna þurfa félagsmenn að skrá sig á aðalfund Blaðamannafélags Íslands sem haldinn verður núna á fimmtudaginn, 29. apríl.   Skráning fer fram með með því að senda tölvupóst á netfangið  jona@press.is   þar sem fram kemur nafn, kennitala og símanúmer.  Fundurinn verður að Síðumúla 23, 3. hæð, Reykjavík, (í allt að þremur sóttvarnarhólfum) og hefst fundurinn stundvíslega kl. 20.00.

Dagskrá:

  • Venjuleg aðalfundarstörf
  • Skýrslur frá starfsnefndum
  • Kosningar
  • Lagabreytingar
  • Önnur mál

BÍ-félagar eru hvattir til að mæta

Ath.:  Athygli er vakin á að vegna veirunnar, covid-19, og röskunar af hennar völdum, gæti komið til frestunar fundarins .

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.