Fjármögnun BBC til skoðunar

admin • 10. mars 2014

Samkvæmt fréttum í Bretlandi koma fram tillögur í skýrslu nefndar um fjármögnun BBC, breska ríkisútvarpsins,  þess efnis að  stofnunin afli sér í auknum mæli sértekna með markaðslegum aðferðum. Stjórnendur BBC hafa hins vegar neitað fréttum Sunday Times um helgina að einn af þeim kostum sem til skoðunar sé væri að taka upp áskriftargjöld í staðinn fyrir núverandi afnotagjald.

 Nú stendur yfir endurskoðun á fjármögnun BBC en núverandi samningur stofnunarinnar við ríkið rennur út 2017. Hjá BBC starfa nú um 8000 blaðamenn og er stofnunin, sem hafði um 3,7 milljarða punda í tekjur af afnotagjöldum í fyrra,  langsamlega  stærsti vinnuveitandi fjölmiðlafólks í Bretlandi.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.