Fjölmenni á Pressukvöldi

admin • 21. janúar 2015

 

Fjölmenni var á Pressukvöldi Blaðamannafélags Íslands og   Félags fréttamanna á Kornhlöðuloftinu í Reykjavík í gær. Umræðuefnið var sviptingar á fjölmiðlamarkaði og voru frummælendur þau   Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri RÚV, Björn Ingi Hrafnsson, útgefandi DV og Pressunar, Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar   og Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar. Fundarstjóri var Sigríður Hagalín Björnsdóttir, varafréttastjóri RÚV. Að loknum framsöguerindum fóru fram almennar umræður og var spurningum beint til allra frummælenda.   Fjárhagsleg staða fjölmiðla og rekstragrundvöllur til framleiðslu á ritstjórnarefni virtist fundarmönnum nokkuð ofarlega í huga og hvernig unnt væri að búa fjölmiðlum eða sjálfstæðum blaðamönnum umgjörð sem tryggði fjárhaglegan grundvöll fyrir sjálfstæðri blaðamennsku.

Elfa Ýr Gylfadóttir og Jón Trausti Reynisson á Pressukvöldinu. Mynd:sbs

Sigríður Hagalín Björnsdóttir var fundarstjóri. Mynd:sbs

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.