Fjögur frumvörp til umbóta á tjáningarfrelsi

Birgir Guðmundsson • 7. mars 2019

Nefnd forsætisráðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis hefur kynnt niðurstöður sínar.  Nefndin skilaði fjórum frumvörpum til ráðherra sem bætast í hóp fimm frumvarpa sem nefndin vann í fyrri áfanga nefndarstarfsins . Nefndin hefur nú lokið verkefnum sínum samkvæmt skipunarbréfi en forsætisráðherra hyggst jafnframt fela nefndinni að gera tillögur til stjórnvalda um hvernig bregðast megi við upplýsingaóreiðu á grundvelli lýðræðislegra grundvallarreglna.

Frumvörpin eru birt í samráðsgátt stjórnvalda og er efnt til tveggja vikna opins samráðs um efni þeirra.

Í nefndinni sátu: Eiríkur Jónsson, prófessor, formaður, Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, varaformaður, Birgitta Jónsdóttir, stjórnarformaður International Modern Media Initiative (IMMI), Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigríður Rut Júlíusdóttir, hæstaréttarlögmaður, Elísabet Gísladóttir, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, Þröstur Freyr Gylfason, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Þorgeir Ólafsson, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu (fram til 11. janúar sl. Elísabet Pétursdóttir). Með nefndinni starfaði Oddur Þorri Viðarsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.