Fjölmiðlar og geðsjúkdómar

Birgir Guðmundsson • 28. janúar 2018

Fjölmiðlar þurfa að gæta fyllstu varkárni í umfjölun sinni um geðsjúkdóma, sérstaklega er umfjöllun um sjálfsvíg vandasöm. Þar þarf áherslan að vera á vonina og hugsanlega lækningu sem lausn á vanda einstaklingsins, en ekki á sjálfsvígin sem slík, vegna þess að umfjöllun um þau getur haft smitáhrif. Þetta er meðal þess sem kemur fram í athyglisverðu erindi sem Ferdinand Jónsson, geðlæknir sem starfar í Bretlandi flutti á læknadögum fyrir skömmu undir yfirskriftinni „Fjölmiðlar og geðsjúkdómar.“   Upptöka af erindinu fylgir með þessari færslu.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.