Fordæma ofbeldi gegn blaðamönnum í Hollandi

Birgir Guðmundsson • 27. janúar 2021

Vaxandi fjandskapar hefur orðið vart gagnvart fjölmiðlum og fjölmiðlafólki í Hollandi samfara því að spenna magnast vegna hertra aðgerða stjórnvalda til að stemma stigu við útbreiðslu Covid 19.  Miklar óeirðir brutust út í mörgum bæjum og borgum í landinu í kjölfar þess að stjórnvöld settu á útgöngubann þann 23 janúar og urðu margir blaða- og fjölmiðlamenn fyrir líkamlegum árásum mótmælenda vegna starfa sinna.  Alþjóðasamtök blaðamanna og Evrópusamtökin ásamt blaðamannasamtökunum í Hollandi hafa fordæmt þessar árásir og lýst verulegum áhyggjum vegna stigvaxandi ofbeldis gegn blaðamönnum.  

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.