Forustumenn blaðamanna í mótmælagöngu í Kænugarði

admin • 26. nóvember 2013

Jim Boumelha, forseti Alþjóðasambands blaðamanna (IFJ) og Nadezda Azhgikhina, varaformaður Evrópusambands blaðamanna (EFJ) gengu í fararbroddi mótmælagöngu um götur Kænugarðs um helgina. Þeir voru  að leggja áherslu á kröfu blaðamanna um heim allan að stjórnvöld hætti að gefa grið þeim sem hafa blaðamenn að skotmörkum. En á laugardaginn var alþjóðlegur dagur baráttunnar fyrir þeim málstað. Kröfugangan kom í kjölfar þriggja daga ráðstefnu um fjölmiðlafrelsi, atvinnuréttindi, öryggi og baráttuna gegn skaðleysi þeirra sem brjóta á blaðamönnum, þar sem Blaðamannasamband Úkraínu var gestgjafi. “Það er gríðarlega brýnt að stjórnvöld í hinum ýmsu löndum axli ábyrgð, en við höfum lært þá lexíu að það eru bara blaðamenn sem munu berjast með kollegum sínum í því að binda endi á skaðleysi þeirra sem gera fjölmiðlamenn að skotmörkum,” sagði Boumelha.

Sjá einnig hér

 

 

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.