Fræðslumyndbönd EJC fyrir blaðamenn

Auðunn Arnórsson • 7. desember 2022

Evrópska blaðamennskumiðstöðin EJC  heldur úti YouTube-rás, þar sem nálgast má fjölda stuttra myndbanda með fræðslu og ráðleggingum fyrir blaðamenn. 

Nýjasta efnið þar eru upptökur frá ráðstefnunni  News Impact Summit 2022, sem haldin var í tékknesku höfuðborginni Prag á dögunum. Þar er hægt að fræðast m.a. um það hvernig blaðamenn geta nýtt sér nýja samfélagsmiðla og önnur forrit á borð við Twitch og TicToc, og fleiri nýsköpunarlausnir eins og gervigreind, í vinnu sinni. 

Einnig má minna á að EJC heldur utan um ýmsa styrki sem blaðamenn í flestum löndum Evrópu geta sótt um. 

 

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.