Fréttamannastyrkir Norðurlandaráðs 2013

admin • 21. febrúar 2013

Norðurlandaráð veitir fréttamönnum á Norðurlöndum styrki árlega og árið 2013 kemur í Íslands hlut fjárhæð að jafnvirði 90.000 danskar krónur. Styrkirnir veita fréttamönnum tækifæri til að auka þekkingu sína á norrænum málefnum og norrænu samstarfi.


Styrkirnir eru veittir einum eða fleiri fréttamönnum dagblaða, tímarita, útvarps- eða sjónvarpsstöðva eða sjálfstætt starfandi fréttamönnum. Við úthlutun fréttamannastyrkjanna árið 2013 verður lögð áhersla á verkefni um  norrænt samstarf, þar á meðal störf og fundi Norðurlandaráðs og áherslu ráðsins á árinu á utanríkis-, öryggis- og varnarmál. Þá verður einnig lögð áhersla á verkefni um menningarstefnu sem vettvang fjölbreytni og sjálfsmyndar á Norðurlöndum, nánar tiltekið um hvernig norrænt samstarf í menningarmálum tekur mið af  auknum flutningi fólks milli landa og meiri fjölbreytni í menningu, trúarbrögðum og þjóðlífi, og hvernig lista- og menningargeirinn túlkar þau lýðræðislegu gildi sem Norðurlandabúar eiga sameiginleg. 

Styrkjunum er úthlutað til einstaklinga á grundvelli greinargerðar í umsókn. Í umsóknum skal tilgreina hvernig umsækjandi hyggst nota styrk. Einnig skal gera grein fyrir verkáætlun og kostnaðaráætlun. Þá skal tekið fram hvort umsækjandi hafi áður hlotið fréttamannastyrk Norðurlandaráðs.


Styrkir eru veittir til eins árs. Styrkþegar skulu senda Íslandsdeild Norðurlandaráðs stutta greinargerð um hvernig styrknum var varið og hvaða efni var unnið í framhaldi af styrkveitingunni. Norðurlandaráð áskilur sér rétt til að nota greinargerðina í sínu starfi.


Frekari upplýsingar um fréttamannastyrki Norðurlandaráðs má finna á
http://www.norden.org/is/nordurlandarad/bladamannastyrkir-nordurlandarads.

Umsóknum má skila rafrænt til larusv@althingi.is eða með bréfi til:
Íslandsdeild Norðurlandaráðs
Alþingi
150 Reykjavík
Umsóknarfrestur er til kl. 12 á hádegi mánudaginn 18. mars 2013.

Hér má sjá skjalið um styrkinn:  http://press.is/images/skjol/Tilkynning.pdf

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.