Fréttamenn dæmdir í héraðsdómi

Birgir Guðmundsson • 26. október 2017

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag dauð ómerk nokkur ummæli fjögurra fréttamanna fréttastofu 365 sem birtust í fréttum, auk þess sem  blaðamönnunum er gert að greiða tveimur mönnum miskabætur vegna meiðyrða og brots á friðhelgi einkalífs í  fréttum um  meinta nauðgun í Hlíðahverfi í Reykajvík.

Mál þetta vakti mikla athygli í nóvember 2015 og voru viðhöf mótmæli fyrir utan lögreglustöðina í Reykjavík. Kærum á hendur mönnunum var hins vegar vísað frá en mennirnir hlutu af þessu skaða. Þó þeir hafi ekki verið nafngreindir í þessum fréttum voru þeir nafngreindir á netinu.

 Kært var vegna fjölmargra ummæla í fréttum  Fréttastofu 365 og var sýknað í mörgum þeirra en dæmd sekt í öðrum.

Í dómsorði kemur fram að stefndi, Heimir Pétursson, greiði hvorum stefnanda um sig, 50.000 krónur, með vöxtum; stefndi, Stefán Rafn Sigurbjörnsson, greiði hvorum stefnanda um sig, 50.000 krónur, með vöxtum; stefnda, Þórhildur Þorkelsdóttir, greiði öðrum manninum  100.000 krónur, með vöxtum  en hinum manninum  200.000 krónur með vöxtum. Þá skal birta forsendur og dómsorð dómsins eigi síðar en sjö dögum eftir dómsuppsögu í Fréttablaðinu og á vefsvæðinu www.visir.is og gera grein fyrir þeim í útvarpsfréttum Bylgjunnar og sjónvarpsfréttum Stöðvar 2 að viðlögðum 50.000 króna dagsektum. Þá skulu stefndu greiði óskipt stefnendum 900.000 krónur í málskostnað.

Fram hefur komið í viðtölum við Kristínu Þorsteinsdóttur aðalritstjóra fréttastofu 365 að þessum dómi verði áfrýjað.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.