Frumkvöðlastarfsemi í fjölmiðlum verðlaunuð

admin • 5. mars 2015

  Evrópusamband blaðamanna (EFJ)ásamt fleiri samtökum sem tengjast fjölmiðlun og útgáfu hafa lýst eftir umsóknum um frumkvöðlaverðlaun í fjölmiðlun, verðlaun sem kallast „ iMinds Press for More Award “. Þessi verðlaun verða afhent í Brussel á alþjóðlegum degi fjölmiðlafrelsis þann 3. maí næstkomandi og nemur verðlaunafjárupphæðin 10 þúsund evrum.

EFJ hefur yfir að ráða rétti til að koma með 10 tilnefningar, en verðlaunin snúast um að heiðra frumkvöðlaverkefni sem nú eru í gangi á sviði fjölmiðlunar. Þessi verkefni þurfa að vera frumleg nýsköpun, sem stuðlar að bættum vinnubrögðum í blaðamennsku og tryggir þannig tjáningarfrelsi sem einkennist af yfirvegun og jafnvægi. Sérstaklega er horft til nýsköpunar í aðferðum og vinnubrögðum við rannsóknarblaðamennsku, uppbyggingu samskiptaneta blaðamanna, eflingu samskipta milli borgara og kynningu nýrra viðskiptahugmynda.

Umsóknarfrestur um þessi frumkvöðlaverðlaun er til 18 mars og er sótt um á sérstöku eyðublaði. Eyðublaðið og frekari upplýsingar má nálgast hér.

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.