Fundaröð um fyrirhugaðar breytingar á stjórnarskrá Íslands

admin • 10. janúar 2013

4. fundur - Stjórnarskráin og lýðræðið: Kosningakerfið - Persónukjör - Þjóðaratkvæðagreiðslur. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 16. janúar kl. 12-14 í Hátíðasal Háskóla Íslands.

Fjórði fundur í fundaröð Háskóla Íslands í samstarfi við HA, HR og Bifröst, þar sem fræðimenn á ýmsum sviðum fjalla um ferlið fram að þessu og einstaka þætti í tillögum stjórnlagaráðs.

Framsögumenn eru:

Gunnar Helgi Kristinsson
Ólafur Þ. Harðarson
Jón Ólafsson
Ágúst Þór Árnason

Fundarstjóri er:  Ragnhildur Helgadóttir

Allir velkomnir

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.