Gríski blaðamaðurinn sýknaður

admin • 2. nóvember 2012

 Gríski blaðamaðurinn Costas Vaxevanis sem birti nöfn rúmlega 2000 landa sinna sem áttu háar upphæðir á svissneskum bankareikningum og hafði verið ákærður fyrir brot á friðhelgi einkalífs þessa fólks, hefur verið sýknaður fyrir dómi.  Listinn sem hann birti hafði áður verið birtur í Frakklandi af þáverandi fjármálaráðherra, Lagarde, og var listinn jafnan kenndur við hann og kallaður Lagarde-listinn.  Mikilvægi listans felst í því að hann er mikilvæg vísbending um stórfelld skattaundanskot, en stjórnvöld í Grikklandi hafa ekki fylgt þessum upplýsingum eftir að heitið geti þrátt fyrir mjög erfiðan fjárhag ríkisins.

Í síðustu viku samþykkti Evrópusamband blaðamanna ályktun þar sem mótmælt var ákæru á hendur Vaxevanis og skorað á dómstólinn að sýkna hann af þessari ákæru, eins og greint var frá hér á síðunni. 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.