Sýningaropnun: Fréttaljósmyndir Gunnars V. Andréssonar

Freyja Steingrímsdóttir • 30. apríl 2025

Á sýningunni "Samferðamaður" er farið yfir ríflega fimmtíu ára feril Gunnars V. Andréssonar fréttaljósmyndara – frá 1966 til 2017. Sýningin verður opnuð á laugardag, 3. maí í Ljósmyndasafni Reykjavíkur kl 15:00. Við hvetjum félagsfólk til að gera sér ferð á sýninguna.

Myndir hans sem birtar voru í dagblöðunum Tímanum, Vísi, DV (Dagblaðinu Vísi), Fréttablaðinu og á fréttavefnum visir.is, eru ómetanleg heimild um íslenskt þjóðlíf. Sýningin er sett upp á þann hátt að áhorfandinn gengur í gegnum tímann, ef svo má segja. Myndirnar eru sveipaðar tíðaranda hvers skeiðs fyrir og sýna glöggt breytingarnar sem urðu á tímabilinu – hvort sem er á umhverfi eða hinum ýmsu sviðum samfélagsins.

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.