Hægt að kjósa í formannskjöri til miðnættis!

Birgir Guðmundsson • 26. apríl 2021

Hér með er það áréttað að enn er hægt að kjósa í formannskjöri BÍ, en kjörfundur stendur til miðnættis í kvöld. Nú um kaffileytið höfðu 263 félagsmenn kosið en á kjörskrá eru 553, þannig að kjörsóknin er orðin tæplega 48%. Niðurstöður kosninganna verða síðan kunngerðar um hádegisbil á morgun eftir að kjörnefnd hefur fundað með tæknimönnum og opnað fyrir úrslitin í kosningakerfinu.  Hægt að finna slóð á kosningakerfið til þess að kjósa í frétt hér fyrir ofan (við hlið myndarinnar).

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.