Halldór Halldórsson látinn

admin • 13. júní 2015

 Halldór Halldórsson blaðamaður er látinn, en hann lést 11. júní, , eftir langa baráttu við lungnasjúkdóm. Hann varð 65 ára. Halldór var um skeið varaformaður BÍ og átti á sínum tíma sæti í siðanefnd félagsins. Hann starfaði á Alþýðublaðinu, RÚV, Íslendingi og var ritstjóri Helgarpóstsins. Árni Þórarinsson blaðamaður og rithöfundur tók athyglisvert viðtal við Halldór, m.a. um rannsóknarblaðamennsku  í útvarpsþættinum „Segðu mér“ á Rás 1 í síðasta mánuði og má hlusta á það viðtal  hér .

Sjá meira um Halldór hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.