Hatursorðræða í brennidepli

admin • 5. desember 2016

Talsverð umræða hefur skapast um hatursorðræðu í kjölfar þess að Pétur Gunnlaugsson lögmaður og útvarpsmaður á útvarpi Sögu og Jón Valur Jensson, guðfræðingur, voru ákærðir af saksóknara fyrir útbreiðslu haturs, en mál þeirra var tekið fyrir í héraðsdómi sl. föstudag.  Ýmis sjónarmið hafa verið viðruð í þessu samhengi og þykja umhugsunarverð  ummæli  Dunja Mijatovi?, talsmanns OSCE í tjáningarfrelsismálum sem birtust hér á síðunni fyrir helgi um að tilraunir stjórnvalda til að elta uppi ummæli á samfélagsmiðlum séu líklegar til að skapa andrúmsloft ótta sem væri skaðlegt tjáningarfrelsinu.  

Í haust stóð Fjölmiðlanefnd og Mannréttindaskrifstofa Íslands fyrir málstofu um hatursorðræðu, á Fundi fólksins í Norræna húsinu. Erindi fluttu Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, fræðslustýra Samtakanna 78 og formaður Trans Ísland, Kolbeinn Tumi Daðason, aðstoðarritstjóri 365 miðla og umsjónarmaður Vísis og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, en auk þeirra tók Unnsteinn Manuel Stefánsson, fjölmiðla- og tónlistarmaður, þátt í pallborðsumræðum. Fundarstjóri var Arna Schram, fulltrúi Blaðamannafélags Íslands í fjölmiðlanefnd.  Fjölmiðlanefnd tók saman yfirlit um það sem fram kom á þessu málþingi sem gagnlegt kann að vera að rifja upp nú í tengslum við umræður dagsins.

Sjá samantekt  Fjölmiðlanefndar hér

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.