Héraðsdómur féllst á flýtimeðferð í Grindavíkurmáli

Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 12. febrúar 2024

Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í dag á beiðni Blaðamannafélags Íslands um flýtimeðferð vegna máls sem félagið  hefur höfðað á hendur íslenska ríkinu  til viðurkenningar á rétti blaðamanna til þess að stunda störf sín í Grindavík. Réttarstefna í málinu var gefin út í dag og birt fyrir íslenska ríkinu. Málið verður þingfest í Héraðsdóm Reykjavíkur kl. 14 á miðvikudag.

Flóki Ásgeirsson, lögmaður BÍ segir: "Búast má við því að ríkið óski eftir 2-4 vikna fresti til að skila greinargerð af sinni hálfu um málið. Flýtimeðferð málsins er forsenda þess að unnt sé að tryggja þau réttindi sem málshöfðunin varðar og afar þýðingarmikið fyrir málið í heild að fallist hafi verið á hana. Ljóst er að um fordæmalausar takmarkanir á fjölmiðlafrelsi er að ræða og málið fordæmisgefandi um hlutverk fjölmiðla við umfjöllun um náttúruhamfarir og takmarkanir á fjölmiðlafrelsi við slíkar aðstæður."

Félagið krefst þess að viðurkennt verði með dómi að blaðamönnum sé það heimilt án sérstaks leyfis lögreglustjórans á Suðurnesjum, fari þeir að þeim almennu fyrirmælum sem í gildi eru á hverjum tíma um umferð um bæinn og lokun einstakra svæða og öðrum lögmætum fyrirmælum lögreglu. 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.