Hjálmar gáttaður á gagnrýni

Birgir Guðmundsson • 18. nóvember 2020

Hjálmar Jónsson formaður BÍ tjáði sig  í viðtali við Fréttablaðið  um gagnrýni þingmanns á framgöngu Einars Þorsteinssonar, fréttamanns RÚV vegna Landakostsmálsins í Kastljósi á dögunum. Þar var Einar að ræða við Má Kristjáns­son, formann farsóttanefndar Landspítalans. Haft er meðal annars eftir  Hjálmari: "Ég er full­kom­lega gáttaður á því að fólk sé að gagn­rýna Einar fyrir að vinna vinnuna sína. Það er hans hlut­verk og skylda að spyrja þessara spurninga. Þetta er ekki per­sónu­legt. Hann er að sinna sínu starfi og á að gera það. Fólk sem er í þessum stöðum á að geta svarað fyrir sínar gjörðir." 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.