Hlutverk blaðamennsku að breytast

admin • 17. nóvember 2014

Blaðamenn og fjölmiðlar almennt þurf að endurhugsa hlutverk sitt í náinni framtíð að mati Ingibjargar Þórardóttur fréttamanns hjá BBC sem hafði framsögu á málþingi til heiðurs Margréti Indriðadóttur í Útvarpshúsinu á laugardag.  Tilkoma samskiptamiðla og gríðarlegs magns upplýsinga sem sett er inn á slíka miðla á hverjum tíma gerir það að verkum að fréttamenn munu síður vera í því hlutverki að vera "fyrstir með fréttina", heldur frekar að staðfesta eða koma ritstýrðri útgáfu til skila til almennings, útgáfu sem hefur farið í gegnum skoðun og mat fagfólks og hefur þannig aðra stöðu en óstaðfestar fréttir samfélagsmiðlanna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í viðtali RÚV við Ingibjörgu sem leggur áherslu á að fjölmiðlar þurfi að leggja meiri áherslu á að útskýra heiminn fyrir fókli.

 

 

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.