Hugrakkar blaðakonur

admin • 26. október 2012

Pistlahöfundurinn Reeyot Alemu, sem var fangelsuð á grundvelli umdeildra hryðjuverkalaga í Eþíópíu, rannsóknarblaðakonan  Khadija Ismayilova  sem starfar í útvarpi í Aserbaijan og hefur mátt búa við stöðugar hlernir og njósir m.a. á heimili sínu, og palestínski bloggarinn og sjálfstætt starfandi blaðakonan , Asmaa al-Ghoul,  sem hefur verið  barin og pínd fyrir að flytja fréttir af mótmælum á Gaza, fá allar viðukenninguna „Hugrekki í blaðamennsku“ sem  samtök kvenna í fjölmiðlum, Women's Media Foundation, veita.   Við verðlaunaafhendinguna í  New York í fyrradag var hinni sjötugu pakistönsku blaðakonu Zubeida Mustafa einnig veitt viðurkenning fyrir ævistarf sitt. Hún var fyrsta konan sem starfaði í hefðbundnum fjölmiðlum í Pakistan og hún vann alla tíð ötullega að því að greiða fyrir og breyta ráðningarmálum á fjölmiðlum í því skyni að fjölga konum.

Sjá meira hér o g einnig hér

Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 6. nóvember 2026
Press.is, vefur Blaðamannafélags Íslands, er nú kominn í loftið. Vonast er til að hann auðveldi félagsmönnum aðgengi að upplýsingum um allt sem tengist starfsemi félagsins.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gestir í fjórða þætti Blaðvarpsins eru Hjálmar Gíslason og Lilja Dögg Jónsdóttir.
Eftir Sigríður Dögg Auðunsdóttir • 4. nóvember 2026
Gervigreindarfyrirtæki nota fréttir og annað efni fjölmiðla til að þjálfa og þróa kerfi sín.